Um Draumey

Velkomin á Draumey svefnráðgjöf

Ég heiti Matthildur Eik og er svefnráðgjafi fyrir börn og eigandi Draumey. Ég er 21 árs, uppalin í Neskaupstað, en þar bý ég með kærasta mínum og saman eigum við yndislega stelpu sem er 1 árs.

Mig langar að hjálpa foreldrum að bæta svefn og svefnvenjur barnanna sinna. Góður svefn skiptir miklu máli fyrir vellíðan og þroska barna, en einnig fyrir foreldra og alla fjölskylduna. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég stofnaði Draumey svefnráðgjöf – til að veita foreldrum stuðning, fræðslu og góð ráð sem geta hjálpað fjölskyldunni að ná betri svefn.

Hvernig kviknaði áhuginn?

Áhugi minn á svefnráðgjöf kviknaði eftir eigin reynslu sem foreldri. Dóttir mín tók tímabil þar sem hún fór reglulega að sofa um miðnætti og það þurfti alltaf að rugga henni í svefn amk í 30 mínútur. Ég leitaði þá sjálf til svefnráðgjafa og áttaði mig á því hversu margt er hægt að gera til að bæta svefn barna og það þarf ekki alltaf að vera flókið.

Þessi reynsla vakti mikinn áhuga hjá mér og varð til þess að ég ákvað að mennta mig í svefnráðgjöf fyrir börn. Mig langaði að geta miðlað þeirri þekkingu áfram og hjálpað öðrum fjölskyldum að ná betri svefni.

Persónuleg og einstaklingsmiðuð ráðgjöf

Ég legg mikla áherslu á að svefnráðgjöfin sé persónuleg og henti hverju barni og hverri fjölskyldu fyrir sig. Öll börn eru ólík og heimilisaðstæður geta verið mjög mismunandi. Þess vegna tel ég mikilvægt að ráðgjöfin sé raunhæf og henti fjölskyldunni sem best.

Ég hef útbúið fjóra ólíka pakka svo þú getir valið þá þjónustu sem hentar þér og þinni fjölskyldu.

Pakki 1 – Krútti
Krútti hentar vel fyrir þá sem hafa ekki tök á að taka þátt í 30 mínútna símtali eða finnst óþægilegt að tala í síma. Þessi pakki gefur þér tækifæri til að fá ráðgjöf á einfaldan og þægilegan hátt í gegnum tölvupóst.

Pakki 2 – Snúlli
Snúlli er góður kostur fyrir þá sem eru tilbúnir í að svara spurningum, taka 30 mínútna símtal og upplifa að aðeins þurfi að gera nokkrar breytingar til að bæta svefninn.

Pakki 3: Dúlli
Dúlli hentar þeim sem vilja fá ítarlegri ráðgjöf og hafa tíma til að svara spurningum og fara yfir stöðuna í síma. Í þessum pakka fylgir einnig svefnáætlun þar sem ég tek saman það sem við höfum ákveðið að prófa með barninu þínu. Þannig þú þarft ekki að hafa áhyggjur að því að muna allt sem kemur fram í símtalinu. Þú færð áætlunina senda í tölvupósti og getur til dæmis haft hana á ísskápnum heima til að hafa hana alltaf við höndina.

Pakki 4 – Lúlli
Lúlli er umfangsmesti pakkinn og hentar þeim sem vilja fá meiri stuðning í gegnum ferlið. Þar er farið yfir svör við spurningum í símtali og gerð svefnáætlun sem hentar barninu þínu og ykkar aðstæðum.
Að auki fylgir tveggja vikna eftirfylgni. Hún getur verið sérstaklega gagnleg ef eitthvað reynist ekki henta barninu, ef upp koma spurningar eða ef þörf er á að aðlaga svefnáætlunina eftir því hvernig gengur.


Ég er hér til að hjálpa

Það getur verið krefjandi að takast á við svefnvanda barns og stundum er erfitt að vita hvar á að byrja. Markmið mitt er að veita þér og þinni fjölskyldu stuðning og leiðsögn í gegnum ráðgjöfina.

Ég hlakka innilega til að taka á móti þér hjá Draumey svefnráðgjöf og hjálpa þér og barninu þínu að bæta svefn og svefnvenjur🤍

Bókaðu tíma á noona.is - Draumey svefnráðgjöf

Hafa samband:
Instagram: draumeysvefnradgjof
Netfang: sofa@draumey.is